Við erum systurnar Gunnhildur Karen og Elísabet Arney





Gunnhildur fæddist þriðjudaginn 11. mars 2003, klukkan 17:07 á Landspítalanum í Reykjavík. Hún var nú ekki mjög stór, bara 49cm og 3160gr.

Þegar hún fæddist var ég með dökkbrúnan hanakamb. Og blá augu. Algjör dúlla:o)
Í dag er Gunnhildur skolhærð með grágræn augu. Hún er mjög dugleg stelpa og ennþá sama dúllan.

Gunnhildur Karen var svo skírð og fékk nafnið sitt þann 12. apríl 2003. Gunnhildur heitir hún eftir ömmu sinni á Selfossi en Karen er bara út í loftið, pabba og mömmu fannst það fallegt og passa vel með hinu.



Elísabet er fædd föstudaginn 29. apríl 2005 á Landspítalanum við Hringbraut.
Við fæðingu mældist hún 4015 gr. eða rétt rúmlega 16 merkur og 52 cm. Hún var með svolítið mikið dökkt hár og falleg blá augu. Enn í dag er hún með þessi fallegu bláu augu en hárið er orðið skollitað, örlítið ljósara en á Gunnhildi stóru systur. Hún var algjör dúlla þá og er enn!!!

Elísabet fékk nafnið sitt fljótlega eftir fæðingu en var svo skírð þann 16. júlí 2005. Elísabet heitir hún eftir ömmu sinni á Stöðvarfirði en Arney er bara út í loftið, pabba og mömmu fannst það fallegt og passa vel með hinu.




Fjölskyldan okkar saman stendur af þessu fólki, mömmu, pabba og stóra bróður.
Mamma okkar heitir Hafdís Unnur Daníelsdóttir og pabbi okkar Björn Þór Jóhannsson.
Stóri bróðir okkar heitir Alexander, við köllum hann alltaf Alla bróðir. Hann er orðinn stór strákur og varð 14 ára í desember 2007.










Þetta þýða nöfnin okkar!



Gunnhildur

Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðliðnum "hildur" sem merkir orrusta, - valkyrja.

Karen

Nafn þetta er önnur mynd nafnsins "Katrín" sem merkir hin hreina.



Elísabet

Nafn þetta er leitt af hebreska orðinu "elisheba" sem merkir Guð er fullkominn, - Guð hefur svarið.

Arney

Nafn þetta er myndað af forliðnum "Arn" sem merkir ýmist örn eða arinn og er þá tákn fyrir heimili, og viðliðnum "ey" sem merkir hamingja, - gæfa.

Arney er því sú sem ber gæfu og hamingju inn á heimilið.















Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.









Barn í nautsmerkinu er í góðu jafnvægi og einbeitt og tekur sér tíma til að gera hlutina og flýtir sér hægt. Þetta er barn sem skilur og metur ferlið sem slíkt. Barn í nautsmerkinu hefur ánægju af því að hugsa um hluti og sýnir staðfestu í nálgun þess. Raunsæi og að hlutirnir séu raunhæfir er stór hluti af þeirra ákvarðanatöku. Þegar þú útskýrir hluti fyrir barni í nautsmerki þá er alls ekki nóg að segja ?þetta er bara svona?. Þetta barn hefur þörf fyrir að skilja af hverju hlutirnir eru eins og þeir eru og hver lógíkin er á bak við reglurnar sem því eru settar, annars getur það ekki fylgt reglunum. Þetta hljómar sem mikil vinna en leiðir af sér vel aðlagað barn í góðu jafnvægi. Annað sem ber að hafa í huga, er þörf barns í þessu merki fyrir snertingu og ástúð. Þú getur aldrei knúsað þetta barn of mikið. Þetta barn er einnig mikið fyrir fjölskyldulíf og er góð húshjálp. Oft er þetta litla aðsoðarmanneskjan þín og vill gera allt eins og mamma og pabbi. Barn í nautsmerkinu er sælkeri og þú getur búist við að það eyði miklum tíma í eldhúsinu við að elda og borða. Nautið er þrjóskt að eðlisfari og mjög erfitt er að fá það til að skipta um skoðun ef það hefur fengið einhverja flugu í kollinn. Annað ríkt einkenni er þolinmæði og þrautseigja sem gerir barn í nautsmerki að góðum námsmanni og sigurvegara.
















Bréf til mömmu og pabba



Elsku mamma og pabbi!


Ég er með svo litlar hendur,
ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farðu hægar, svo að ég geti fylgt þér eftir.

Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,
ég skil það ekki.

Horfðu á mig þegar ég tala við þig,
þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar.

Ekki vera alltaf að skamma mig, leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vera vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég er að teikna eða
rúmið sem að ég bý um verði fullkomið.

Elskaðu mig bara fyrir að reyna.

Mundu að ég er bara barn, en ekki fullorðin vera.

Stundum skil ég ekki það sem þú segir.

Ég elska þig svo mikið.

Elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir það sem ég geri.







Bara í dag....

-ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...

-ætla ég að leyfa mér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag...

-ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í,

brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu...

-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...

-ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt...

-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur...

-ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...

-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór...

-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...

-ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...




Bara í kvöld....

-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...

-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...

-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...

-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...

-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig.
















Elísabet Arney litla systir mín

Aðalheiður Ósk Stefánsdóttir litla frænka

Uni Dagur og
Signý Pála


Hanna Steina Yin

Jóna Vigdís

Kristján Þór

Erna Dagný

Þorbjörg Tinna

Andrea Ýr

Rakel Eir

Patrekur Máni

Kristófer Helgi og litla systir

Björgvin Ingi

Birna Rós

Danía Rut

Sara Ísold

Petra Rut

Katrín Tara









0/2 Queries in 0/0 ms
0 ms
DomainInfoV3_barnaland.is(6969B)
ShouldBeLocal:True
IsLocal:True
System.Object get_Item(System.String, Boolean))
Barnaland.DomainInfo GetDomainInfo(System.String, Boolean))
Barnaland.DomainInfo get_Current())
Void OnBeginRequest(System.Object, System.EventArgs))
Void System.Web.HttpApplication.IExecutionStep.Execute())
System.Exception ExecuteStep(IExecutionStep, Boolean ByRef))
Void ResumeSteps(System.Exception))
System.IAsyncResult BeginProcessRequestNotification(System.Web.HttpContext, System.AsyncCallback))
System.Web.RequestNotificationStatus ProcessRequestNotificationPrivate(System.Web.Hosting.IIS7WorkerRequest, System.Web.HttpContext))
Int32 ProcessRequestNotificationHelper(IntPtr, IntPtr, IntPtr, Int32))
Int32 ProcessRequestNotification(IntPtr, IntPtr, IntPtr, Int32))
0 ms
TmxV3_is-barnaland(294312B)
ShouldBeLocal:True
IsLocal:True
T GetContract[T](System.String, Boolean, Boolean))
Frontur.Core.Tmx GetTmx(System.String, System.String, Boolean))
Void Page_Init())
Void ArglessFunctionCaller(IntPtr, System.Object))
Void OnInit(System.EventArgs))