Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Gunnhildur Karen
Gunnhildur Karen
  • Elsku Gunnhildur Karen, 9 ára stelpan okkar. Við óskum þér innilega til hamingju með afmælið og vonum að þú hafir átt skemmtilegan dag. Megi allar góðar vættir vaka yfir þér alla tíð. Við elskum þig. Ástarkveðjur til allra þinna. Amma og afi.
    Guðný E. Kristjánsd
    |
    11.3.2012 21:23:51
  • Elsku litla Ísold Klara okkar. Við óskum þér innilega til hamingju með 1 árs afmælið þitt. Megi Guð og allir hans englar vaka yfir þér alla tíð. Við elskum þig og hlökkum óendanlega mikið til að sjá þig duglega og flotta stelpan okkar. Ástarkveðjur til þín, mömmu, pabba og systkina. Amma og afi á Stöðvarfirði.
    Guðný E. Kristjánsdóttir
    |
    3.3.2012 20:41:37
Elsku besta Elísabet Arney okkar. Við óskum þér innilega til hamingju með 6 ára afmælið, stóra stelpa, sem á að fara í skólann í ágúst. Vonum að þú eigir glaðan og góðan dag, og framtíðin verði björt. Við elskum þig. Ástarkveðjur til allra þinna. Þín amma og afi á Stöðvarfirði.
Guðný E. Kristjánsdóttir | 0 | 29.4.2011 16:47:02 #
Til hamingju með 8 ára afmælið elsku Gunnhildur frænka okkar :o) Skemmtu þér vel í dag! Afmælisknús, Uni Dagur, Signý Pála og Hanna Steina
Kristjana Erlen Jóhannsdóttir | 0 | 11.3.2011 12:57:08 #
Elsku Elísabet Arney okkar, afmælisstelpa. Við óskum þér innilega til hamingju með 5 ára afmælið, bara eitt ár í stóra skólann,ótrúlega fljótur að líða tíminn.Vonum að þú eigir yndislegan dag og biðjum Guð og alla englana hans að vaka yfir þér alla daga. Ástarkveðjur til þín, mömmu, pabba og systkina. Þín amma og afi, á Stöðvarfirði.
Guðný E. Kristjánsdóttir | 0 | 29.4.2010 15:58:44 #